Í áfanganum er fjallað um grundvallarhugtök rekstrar- og þjóðhagfræðinnar. Rekstur einkafyrirtækja og hins opinberra er skoðaður. Rýnt er í helstu þætti er varða innra skipulag fyrirtækja og ytri aðstæður þeirra. Áhersla er lögð á að nemandinn tileinki sér gagnrýna hugsun og sjálfstæð vinnubrögð.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hagfræði sem fræðigrein, meginviðfangsefnum hennar og grundvallarspurningum
grundvallarhugtökum hagfræðinnar
helstu framleiðsluþáttum
muninum á markmiðum með rekstri fyrirtækja og stofnanna
hlutverki hins opinbera í hagkerfinu
efnahagslegum tengslum Íslands við önnur lönd
rekstri fyrirtækja og stofnana
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útskýra algengustu hugtök sem unnið er með í áfanganum
lesa og skilja fréttir um hagfræðileg málefni
nota framboðs- og eftirspurnarlínurit til að skoða þróun á markaði
nýta sér netið við öflun gagna og lausn verkefna
reikna út afkomu fyrirtækja
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í daglegri efnahagsumræðu
leggja mat á upplýsingar um efnahagsmál
tengja undirstöðuþekkingu í hagfræði við rekstur fyrirtækja og þróun efnahagsmála
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.