Í fyrirtækjasmiðjunni mynda nemendur hópa og stofna sitt eigið fyrirtæki sem þeir reka út tímabilið. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á því að halda utan um allt sem við kemur rekstri fyrirtækisins en hafa nokkuð frjálsar hendur um val á afurð (vöru eða þjónustu) fyrirtækisins. Við rekstur fyrirtækisins nýta nemendur þá þekkingu, leikni og hæfni sem þeir hafa öðlast í öðrum áföngum svo sem bókfærslu, rekstrarhagfræði, markaðsfræði og stærðfræði. Mjög mikil áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og ábyrgð þeirra á eigin námi.
HAG3FM05(ms)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fyrirtækjarekstri
gerð viðskiptaáætlana
gerð einfaldra rekstrarreikninga
gerð einfaldra efnahagsreikninga
gerð einfaldra arðsemisútreikninga
helstu rekstrarformum fyrirtækja
lögmálum hagfræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
ræða viðfangsefni á málefnalegan hátt
taka ákvarðanir
starfa í hóp þar sem unnið er að sameiginlegu langtímamarkmiði
gera auglýsinga- og kynningaráætlanir
fjármagna eigin rekstur
miðla sínum skoðunum og hlusta á skoðanir annarra í hópnum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skipuleggja og tímasetja krefjandi langtímaverkefni
stofna og reka lítið fyrirtæki
þróa viðskiptahugmynd
stýra verkefnum
gera markaðs- og viðskiptaáætlun
fara í gegnum framleiðsluferli afurðar (vöru eða þjónustu)
markaðsetja og selja afurðir sínar
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.