Áfanginn fjallar um undirstöðuatriði rafsegulfræði sem eru eðlisfræði raf- og segulmagns. Kennslan grundvallast á samvinnu nemenda við skriflegar úrlausnir dæma. Áhersla er lögð á öflugt námssamfélag og áhugavakningu þátttakenda.
EÐLI2AF05(ms)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
rafhleðslu og rafkrafti
rafsviði og spennu
straumi og rafafli
uppbyggingu rafrása
viðnámi, þéttum og spólum
lögmáli Ohms og reglum Kirchhoffs
segulsviði og segulkrafti
rafseguspani (lögmáli Faradays) og spennubreytum
hegðun ljóss sem rafsegulbylgju og jöfnum Maxwells
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita lögmálum rafmagnsfræðinnar
beita jöfnum af ýmsu tagi við lausn verkefna
vinna með ólíkar einingar og sjá samhengi milli einstakra eininga
vinna með vigra í rafmagnsfræðinni varðandi sviðshugtakið
beita teikningum við lausn verkefna til að glöggva sig á aðstæðum
vinna með raf- og spennumæla í rafrásum
setja niðurstöður tilrauna fram á skýran máta og túlka á gagnrýninn hátt
beita einföldum skekkjuútreikningum við niðurstöður tilrauna og leggja mat á áreiðanleika tilraunar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra virkni grunnþátta ýmissa raftækja og rafeindabúnaðar
bera kennsl á tengslum eðlisfræði raf- og segulmagns við fjölbreytt náttúrufyrirbrigði
gera grein fyrir orkuþörf og orkubúskap helstu raftækja
skilja virkni rafsegulspans í rafölum og mótorum
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.