Í þessum framhaldsáfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar jafnframt því sem byrjað er að byggja ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: Orkuhugtakið í efnahvörfum (hvarfavarmi), gaslögmálið, hraði efnahvarfa og hraðalögmálið, orkulínurit og virkjunarorka.
EFNA2LM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugmyndum um orku og lögmálinu um varðveislu orkunnar
innri orku og hvarfvarma
grunnatriðum efnafræði lofttegunda, hraðafræði efnahvarfa og hvarfhraða
orkulínuriti, virkjunarorku og hugtökin innvermið og útvermið efnahvarf
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna stöðu- og hreyfiorku út frá mælistærðum, vinna með umbreytingu orku milli orkuforma og nota orku með efnajöfnum
nota gaslíkinguna og reikna hlutþrýsting
nota hraðalögmálið
útskýra áhrif hita, mólstyrks og hvata á hraða efnahvarfa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
framkvæma verklegar æfingar og vinna úr niðurstöðum
skrifa skýrslur um tilraunir og meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
nýta hópavinnu til að leysa flóknari viðfangsefni
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi í auknum mæli
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.