Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1668078044.45

    Efnajafnvægi og orka
    EFNA3EJ05(ms)
    25
    efnafræði
    Efnajafnvægi
    for inspection
    3
    5
    ms
    Í þessum framhaldsáfanga er haldið áfram með grunnatriði efnafræðinnar jafnframt því sem byggt er ofan á fyrri þekkingu. Efnisþættir sem eru teknir fyrir eru: Jafnvægi í efnahvörfum, sýrur og basar, títranir, fríorkubreyting Gibbs, fellingahvörf (leysnimargfeldi), oxun- og afoxunarhvörf.
    EFNA2EO05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • jafnvægi í efnahvörfum
    • efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum sýrum og bösum
    • fellingarhvörfum og leysnimargfeldi
    • sjálfgengni efnahvarfa, Gibbs fríorku og tengslum hennar við jafnvægisfastann
    • oxun og afoxun
    • flokkun efnahvarfa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota jafnvægisfasta og jafnvægisstyrki til útreikninga og nota reglu Le Châtelier
    • vinna með útreikninga tengda sýrum og bösum
    • reikna orkubreytingar í efnahvörfum og tengja saman orkubreytingar og jafnvægisástand
    • vinna með oxun og afoxun efna í tengslum við rafefnafræði
    • vinna með helstu tegundir efnahvarfa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sjá tengslin milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu á milli þeirra
    • tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
    • leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna og annarra
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
    • nýta þekkingu úr efnafræði til að taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í rökræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    • tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    • takast á við frekara nám í efnafræði.
    • framkvæma verklegar æfingar og skrifa góða skýrslu
    Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.