Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1668162175.74

    Fatagerð og fatahönnun
    FATA1FF05(MS)
    9
    fatahönnun
    Fatagerð framhald
    for inspection
    1
    5
    MS
    Áfanginn er rökrétt framhald af FATA1HS05 þar sem nemendur læra dýpri tækni í fatagerð og fatahönnun. Það er lögð áhersla á hugmyndaöflun, þemaspjöld, skissuvinnu og tískuteikningar með skyggingum. Læra að vinna með flóknari snið, sniðhluta og sniðsauma. Læra að sauma kraga, vasa, rennilása og hnappagöt. Nemendur læra einnig nokkrar aðferðir í textíl skreytingum að þrykkja á efni, straulíma efni saman, teikna á efni og skreyta með saumavélinni t.d. lógó. Áhersla er líka lögð á endurvinnslu. Laga og breyta gömlum fötum í eitthvað nýtt. Nemendur sauma 2-3 flíkur á önn
    FATA1HS05 (MS)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugmyndaöflun, skissuvinnu og tískuteikningum með skyggingum
    • hvernig líkamsmál eru tekin og gerður samanburður við stærðartöflur
    • orðaforða greinarinnar til að geta notað skýringarmyndir og vinnulýsingar
    • uppbyggingu grunnsniða, einföldum sniðbreytingum og efnisþörf
    • flóknari útfærslum í saumtækni eins og sniðsaumum, vösum og rennilásum
    • mismunandi eiginleikum textílefna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna hugmyndavinnu og koma hugmyndum sínum á blað
    • útfæra snið eftir eigin hugmyndum og málum, fara eftir verklýsingum og reikna efnisþörf
    • vinna á saumavélar og þekkja notagildi stillinga, saumavélafóta og saumavélanála
    • nýta sér möguleika í notkun og endurvinnslu textílefna
    • temja sér vönduð vinnubrögð við alla þætti vinnunnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna hugmyndir, skissa og vinna útfrá þeim skyggðar tískuteikningar
    • aðlaga grunnsnið að sínum hugmyndum
    • gera vinnuferlið frá hugmynd að fullunninni flík skipulega skil í vinnuskýrslu með teikningum og orðaforða greinarinnar
    • nota tölvur til upplýsingaöflunar
    • þekkja möguleika í endurvinnslu og umhverfisvitund á textílefnum
    Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.