Áfanginn er byrjunaráfangi í leirmótun. Nemendur læra grunntækni við meðferð leirs og að forma nytjahluti, lágmyndir og þrívíð verk með mismunandi aðferðum. Þeir fræðast um mismunandi bræðslumark leirtegunda og glerunga, leirlím og réttar aðferðir við þurrkun og frágang. Nemendur fullvinna hlutina: glatta, lita með oxíðum og glerja.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi aðferðum við meðhöndlun leirs á ýmsum stigum
eiginleikum mismunandi leirtegunda og hvaða leirtegund hentar best hverju sinni
brennslumarki leirs og glers
hvaða mótunaraðferð hentar hverju sinni við útfærslu verkefnis
umgengni á vinnustofu og meðferð áhalda
starfi leirlistamanna og hönnuða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útfæra mismunandi mótunaraðferðir; kúlu-, pylsu-, plötu- og klumpaðferð
hnoða og móta leir
festa saman plötur/pylsur svo að hrökkvi ekki í sundur í þurrkunarferlinu
nota leirliti og glerunga
vinna út frá teikningum og skissum
nýta sér ýmsar kveikjur til hugmyndavinnu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér grundvallaraðferðir við mótun
meðhöndla leir og ganga frá á nytjahlutum
forma og þróa eigin hugmyndir
forma og þróa eigin hugmyndir
útfæra hugmynd í fullgert verk
sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.