Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1668163943.76

    Leirmótun og þrívíð verk
    LEIR2LÞ05(MS)
    2
    Leirlist
    Leirmótun og þrívíð verk
    for inspection
    2
    5
    MS
    Áfanginn er dýpkunaráfangi í leirmótun og þrívíðum verkum úr ýmiss konar efniviði. Unnið er áfram með nytjahluti og leirskúlptúra. Áhersla lögð á faglegan lokafrágang, s.s. undirstöður, handföng og lok þar sem það á við. Gerðar tilraunir með blöndun glerungs auk þess að gera tilraunir með ýmislegt annað, s.s. að nota gler, sand o.fl. við lokaútfærslu. Búa til gipsmót til að nýta við leirmunagerðina. Skissu-vinna á Listasafni. Kynning á útilistaverki.
    LEIR1LM05 (MS)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • eiginleikum mismunandi leirtegunda og hvaða leirtegund hentar hverju sinni
    • brennslumarki leirs og glers
    • hvaða mótunaraðferð hentar hverju sinni eftir útfærslu verkefnis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nýta hugmyndaflug og sköpunarkraft til að vinna verk úr mismunandi efnum og jafnvel endurnýttum efniviði
    • vinna með mismunandi mótunaraðferðum
    • búa til einfalt gipsmót og nýta það til að fjölfalda eigin hönnun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér viðeigandi leirtegundir til að útfæra hugmyndir í fullgerð verk
    • meðhöndla leir og ganga frá nytjahlutum
    • velja rétta mótunaraðferð hverju sinni
    • tileinka sér sjálfstæð vinnubrögð
    Gerð er grein fyrir námsmati og sundurliðun þess í námsáætlun.