Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1668519101.79

    Hliðræn og stafræn merki, iðntölvur, reglun
    RÖKV3HS05
    13
    stýringar og rökrásir
    hliðræn og stafræn merki, iðntölvur, reglun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um stærri iðntölvur og eiginleika þeirra. Einnig helstu gerðir íhluta iðntölvustýrina og forritun þeirra. Nemendur fá kennslu og þjálfun í forritun iðntölva og forritunartækja og herma í PC-tölvum. Farið er í ladder og uppsetningu skjámynda. Farið er yfir hvernig skjámyndir geta verið hluti af stýringum. Farið er í uppsetningu reikniblokka hliðrænna stýringa. Nemendur fá æfingu í að tengja ytri búnað við iðntölvu s.s. skynjara (hliðræna og stafræna).
    RÖKV2SK05 og RÖKV3SF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu minnisgerðum iðntölva og eiginleikum þeirra, vinnsluhraða og vinnsluferli iðntölva
    • öllum helstu skipunum stafrænnar- og einfaldrar hliðrænnar virkni
    • staf- og hliðrænum skynjurum
    • hvernig skjámyndir í iðntölvum virka
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hanna og forrita ýmsa sjálfvirka ferla með iðntölvum
    • forrita iðntölvur í ladder, virkniblokkum og flæðimyndum
    • tengja skynjara við iðntölvur
    • forrita einfaldar skjámyndir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • reikna út og vinna með hliðræna og stafræna ferla
    • setja upp, forrita og tengja iðntölvur við ytri búnað
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.