Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1672919010.11

    Íslenska - Bókmenntir síðari alda, túlkun og tjáning
    ÍSLE3BS05
    116
    íslenska
    bókmenntir síðari alda
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður meginviðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir síðari alda. Nemendur fá æfingu í bókmenntafræðilegri túlkun á textum tímabilsins. Lögð verður áhersla á hvers konar tjáningu sem reynir verulega á rökhugsun og hæfileika nemanda til blæbrigðaríkrar framsetningar.
    ÍSLE2FR05 - eða 10 einingar á öðru þrepi.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismunandi tegundum bókmennta og nytjatexta
    • stefnum í íslenskum bókmenntatextum síðari alda
    • beitingu bókmenntahugtaka á lesna texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa allar gerðir ritaðs máls síðari alda
    • skilja lykilhugtök í texta og greina mismunandi sjónarmið
    • vinna úr og tjá sig um hvers konar texta á greinargóðan hátt
    • beita rökhugsun og hæfileikum í allri framsetningu
    • nýta sér gagnrýni annarra til að bæta eigin vinnubrögð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við úrvinnslu krefjandi texta
    • átta sig á samfélagslegum skírskotunum í bókmenntum síðari alda
    • útskýra sjónarmið í málefnalegum umræðum
    • efla og meta eigin málfærni og annarra
    • beita rökum til að komast að vel ígrundaðri niðurstöðu
    • skrifa skýran og grípandi texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum
    • sýna sköpunarhæfni og samlíðan í ræðu og riti
    Námsmat byggir á leiðsagnarmati þar sem nemandinn fær endurgjöf á það sem vel er gert ásamt ábendingum um það sem betur má fara. Við námsmatið er nýtt kennaramat, sjálfsmat og jafningjamat. Leitast er við að hafa námsmat sem fjölbreyttast til þess að sýna rétta mynd af þekkingu, leikni og hæfni nemenda.