Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1673602033.21

    Raflagnir
    RALV1RK05
    11
    raflagnir
    Rofarásir með röra- og kapallögnum
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemandinn kynnist vel starfi og starfssviði rafiðnaðarmannsins, öðlast skilning á eðlisfræðilegri hegðun rafmagns og fræðist um virkni ólíkra rofa með tengi- og smíðaverkefnum. Einnig kynnist hann því efni sem notast er við í einfaldar raflagnir. Nemandinn fær fræðslu um öryggismál og kynnist reglugerðum sem gilda fyrir fagið.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • öryggismálum og reglugerðum er varða vinnu við rafmagn
    • helstu verkfærum rafiðnarmannsins og búnaði
    • virkni mismunandi rofa
    • helstu teiknitáknum
    • litakóða víra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja rofa, samrofa, krónurofa og krossrofa
    • leggja kapallagnir fagmannlega á spjald
    • leggja röralagnir fagmannlega á spjald
    • tengja falir, klær og fjöltengi
    • beita réttum verkfærum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja muninn á búnaði með tilliti til mismunandi aðstæðna
    • geta valið einfaldan búnað með tilliti til aðstæðna
    • greina mun á faglegum og ófaglegum vinnubrögðum
    • gæta fyllsta öryggis í umgengni við rafmagn
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.