Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1673606403.65

    Raflagnir 2
    RALV1GR05
    12
    raflagnir
    Greinatöflur og búnaðir, rofarásir og röralagnir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Farið verður í mismunandi gerðir rofa, lagnir íbúðarhúsa, greinatöflur og rofaliða í þeim. Helstu heimilistæki eru kynnt og orkunotkun þeirra skoðuð. Nemendur læra að velja leiðara miðað við orkunotkun og velja varnarbúnað við hæfi. Farið er í öryggismál, hvernig á að haga sér við hinar ýmsu aðstæður. Nemendur læra að nýta sér reglur og staðla við lagnir.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • utanaðkomandi aðstæðum á raflagnir eins og raka og varma.
    • öryggis og reglugerðarákvæðum er varða raflagnir og varnaraðferðir
    • helstu heimilistækjum og straumþörf þeirra
    • mikilvægi fagmannlegra vinnubragða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja ýmsa rofa og búnað sem tilheyra minni veitum.
    • forðast hættur bæði í vinnu við rafmagn og umgengni á vinnustöðum.
    • draga leiðara í rör.
    • skipleggja starf sitt og beita faglegum vinnubrögðum.
    • tengja helstu rofa og tengla í minni veitum.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir orkunotkun í heimahúsum og velja búnað í samræmi við hana.
    • velja raflagna efni í minni veitur.
    • leggja raflagnir og tengja í minni veitur.
    Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.