Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1675098960.48

    Jafnréttis- og kynjafræði
    JAFN1JK05
    1
    Jafnréttis- og kynjafræði
    Jafnréttis- og kynjafræði
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum verður fjallað um jafnrétti, mannréttindi og kynjafræði. Leitast verður við að tengja viðfangsefni við daglegt líf nemenda. Viðfangsefni áfangans eru réttindahugtakið, mannréttindi, jafnrétti, fjölmenning, kynþáttamisrétti, réttindi fatlaðra, réttindi barna, stéttamisrétti, jafnrétti kynjanna, femínismi, kynhlutverk, feðraveldi, kynbundið ofbeldi, og klám.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum tengdum mannréttindum, jafnrétti og kynjafræði
    • tengslum jafnréttismála og samfélags
    • stöðu ólíkra hópa í samfélaginu, og réttindabaráttu þeirra
    • staðalmyndum um ólíka hópa samfélagsins
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • kynna sér ítarlega réttindabaráttu hóps að eigin vali og stöðu þess hóps í samfélaginu, miðla þeirri þekkingu sem hann hefur aflað sér með samnemendum og leiða umræðu um niðurstöður sínar
    • greina stöðu og staðalmyndir ólíkra hópa eins og hún birtist í fjölmiðlum, auglýsingum, námsefni og almennri umræðu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka ígrundaða afstöðu til jafnréttismála og réttindabaráttu
    • rökræða viðfangsefni áfangans á málefnalegan hátt
    Prófað verður úr skilningi á lykilhugtökum áfangans. Metið verður rannsóknarverkefni sem felur í sér rannsóknarvinnu, ritgerð og munnlega kynningu. Einnig verða metin smærri verkefni og umræður um viðfangsefni áfangans.