Í áfanganum er lögð áhersla á minni húsveitur fyrir allt að 100 A. Heimtaugum að einbýlis- og fjölbýlishúsum og helstu raflögnum og búnaði fyrir ljósa og tenglagreinar. Áhersla er lögð á kunnáttu á varnarráðstöfunum í stærri húsveitum og farið vel í öryggismál. Farið verður í sérákvæði varðandi raflagnir í einstökum rýmum og staðsetningu á rafdreifiskápum. Sett verður upp aðaltafla, lagnir frá henni m.a. að þriggja fasa hreyfli. Gerðar verða mælingar og kostnaðaráætlanir. Nemendur gera efnis- og kostnaðaráætlun.
RALV3IR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppbyggingu og virkni varnarráðstafana
öryggismælingum á húsveitu
reglugerðarákvæðum og stöðlum varðandi neysluveitur
mismunandi lágspennu kerfum
uppbyggingu aðal- og greinatafla.
hvernig öryggismælingar eru framkvæmdar og virkni helstu mælitækja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tengja heimtaugar við húsveitur upp að 400 Amper.
setja upp og tengja aðaltöflu upp að 400 Amper.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ákveða stærð aðaltöflu
mæla hringrásarviðnám, einangrunarviðnám og fasaröðun
gera úttektarskýrslu
ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
skila verkinu fagmannalega frá sér
Námsmat er útfært í námsáætlun í samræmi við skólanámskrá.