Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1675943530.43

    Akademísk enska
    ENSK3AE05
    100
    enska
    Almenn akademísk enska, bókmenntir, ritun
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga verður kennd akademísk skrift, lestur og aðferðir við akademísk vinnubrögð í Ensku. Lögð er áhersla á að auka formlegan orðaforða sem undirbúning fyrir framhaldsnám á háskólastigi og atvinnulíf og nemendur fá tækifæri til að þjálfa akademísk vinnubrögð sem eykur forskot í háskólanámi.
    ENSK3FO05 eða ENSK3YN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stöðlum við ritgerðarsmíð
    • ýmsum akedemískum greinum
    • akademískum vinnubrögðum
    • heimildaleit og heimildanotkun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa akademískar greinar
    • vinna úr akademískum textum
    • leita sér upplýsinga og nýta sér heimildir samkvæmt reglum um notkun heimilda
    • skrifa formlega ritgerð með inngangi með efnisyrðingu, meginmáli og lokaorðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér fræðitexta og leggja gagnrýnið mat á hann
    • vinna með fræðitexta og annað efni í háskóla
    Fjölbreytt námsmat með áherslu á leiðsagnarnám.