Þessi áfangi er fyrir nemendur sem stunda þjálfun undir handleiðslu þjálfara 4x eða oftar í viku og hafa það að markmiði að ná hámarksárangri í sinni íþróttagrein.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum.
reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
mæla þol, styrk og liðleika.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu