Markmið áfangans er að nemendur nái tökum á undirstöðuatriðum enskrar málfræði, geti skilið daglegt mál og tjáð sig um einfalda hluti munnlega og skriflega. Að nemendur öðlist grunnorðaforða og séu undir það búnir að fara í næsta áfanga. Lögð er áhersla á að nemendur tali skýrt mál og noti það á réttan og viðeigandi hátt. Nemendum er gerð grein fyrir því hvernig þeir geti sjálfir bætt við þekkingu sína og tekið ákvarðanir er varða tungumálanám þeirra. Unnið er markvisst að því að efla sjálfstæði nemenda í námi. Að hver nemandi finni eigin leiðir til að ná árangri í náminu og setji sér markmið. Til þess að nemendur öðlist sjálfstæði í námi er lögð áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt að hinum ýmsu verkefnum og kynningum. Þessi þriggja eininga áfangi er frábrugðinn öðrum ensku áföngum því framvinda er metin jafnt og þétt og nemendur geta unnið eins hratt eða hægt og þeir vilja. Hægt er að ljúka á bilinu einni til þremur einingum. Hafi nemandi lokið öllum fimm lotum áfangans og sýnt viðunandi hæfni í öllum fjórum efnisþáttum telst áfanganum lokið, jafnvel þó önninni sé ekki lokið. Ekki er gefin lokaeinkunn í áfanganum en tilgreint er hve margar einingar nemandi hefur staðist með bókstafnum „S“ og einingafjölda.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
grunnorðaforða til hagnýtra nota
textasmíð af ýmsum toga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota uppflettirit eða orðabækur
taka þátt í almennum samræðum
lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði texta sem tengjast áhugasviði, fræðilega og bókmenntalega
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
tjá sig munnlega skýrt um málefni sem hann hefur kynnt sér
tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
nota tengiorð og samtengingar
skrifa skipulegan texta og skipta í efnisgreinar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreina og skáldskapar
taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.