Í áfanganum skoða nemendur stöðu umhverfismála sem tengjast skólanum eða nærumhverfis hans og vinna að því að koma með markvissar hugmyndir að úrbótum. Mikil áhersla er lögð á að nemendur sýni frumkvæði og þjálfist í lýðræðislegum vinnubrögðum. Efnisáherslur í áfanganum eru breytilegar frá einni önn til annarrar og megináherslan á ákveðna þemu sem t.d. getur verið samgöngur, orka, lýðheilsa, loftslagsbreytingar, neysla, hnattrænt jafnrétti eða annað.
UMHV2UN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtakinu „sjálfbærni“
í hverju verkefnið „Skólar á grænni grein“ felst
hver staða umhverfismála er innan skólans
ýmsum hugtökum sem tengjast þema áfangans hverju sinni
hver staða afmarkaðra umhverfismála er utan skólans, svo sem í nærsamfélaginu, á landsvísu eða á heimsvísu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leita sér upplýsinga um umhverfismál, bæði á íslensku og ensku
nýta upplýsingar tengdar umhverfismálum til að draga ályktanir
meta stöðu umhverfismála í skólanum
setja fram hugmyndir um viðfangsefni tengd umhverfismálum, innan skóla og utan, sem vert væri að vinna að úrbótum á
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka á gagnrýninn hátt þátt í umræðum um umhverfismál
vinna í hóp við að útfæra eigin hugmyndir og annarra
skoða umhverfismál í samhengi við sjálfbæra þróun
fræða nemendur og starfsfólk skólans um afmarkað efni tengt umhverfismálum
taka þátt í að standa að viðburðum sem tengjast umhverfismálum
Leiðsagnarnám. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.