Í áfanganum verður fjallað um sögu Rússlands, Sovétríkjanna og Úkraínu á breiðum grundvelli og helstu atriði tekin fyrir sem einkenna sögu þessara ríkja. Tímabilið sem tekið verður fyrir er frá keisaratímanum til stríðsins í Úkraínu. Fjallað verður bæði um einstaka atburði, þróun þeirra og áhrif á sögu svæðisins. Fjallað verður um leiðtoga og helstu persónur sem koma að atburðarásinni.
SAGA2MS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu einkennum sögu Rússlands, Sovétríkjanna og Úkraínu
helstu þáttum sem mótuðu og höfðu áhrif á sögu Rússa/Sovétmanna og Úkraínumanna á 20. öld og fram til dagsins í dag
sögu kommúnismans, iðnvæðingu Sovétríkjanna og samskiptum þeirra við önnur lönd
orsökum á hnignun og hruni Sovétríkjanna
endurfæðingu Rússlands, valdatíma Vladimír Pútíns sem og átökum í Úkraínu frá árinu 2014 til dagsins í dag
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með frumtexta
vinna með ritaðar heimildir á skipulagðan hátt
nota APA kerfið
greina sögulega þróun og samhengi hennar
miðla sögulegri þekkingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera saman, finna tengsl, einfalda og draga ályktanir af sögulegum atburðum og þróun
vinna sjálfstætt og setja fram sögulegar greiningar
vinna skipulega með sögulegan texta og setja fram á rökrænan hátt