Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1677834352.77

    Sund
    ÍÞRG1SU02
    21
    íþróttagrein
    Sund
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Viðfangsefni áfangans er helstu greinar sundíþróttarinnar og er áfanginn að mestu verklegur þar sem áhersla er lögð á hreyfingu í vatni. Í áfanganum er farið í grunnatriði helstu greina og þau þjálfuð. Einnig prófa nemendur herþjálfun í vatni, sundleikfimi, sund-fitness og vatnapóló. Efni tengt viðfangsefnum er sett á kennsluvef og nemendur vinna fjölbreytt verkefni, bæði verkleg og bókleg, ýmist einir eða í hóp undir leiðsögn kennara.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum þjálfunaraðferðum helstu greina í sundi
    • grunnatriðum helstu greina í sundi
    • reglum helstu keppnisgreina í sundi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • iðka sundíþróttina
    • framkvæma upphitun sem hentar mismunandi greinum íþróttarinnar
    • framkvæma æfingar til að bæta getu sína í helstu greinum íþróttarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • iðka sund og nýta það sem hreyfingu og keppa ef vill
    • geta tekið þátt í umræðu um helstu greinar íþróttarinnar
    • geta horft á keppni í sundi og áttað sig á framgangi hennar
    Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni og áhuga.