Fjallað er um rafíþróttir í heild sinni. Farið verður yfir sögu rafíþrótta og þróunar hennar sem íþrótt. Einnig verður farið yfir helstu leiki sem keppt er í og hvernig er hægt að ná árangri í þeim leikjum. Nemendur finna sér hlutverk í rafíþróttaheiminum, til dæmis spilari, þjálfari eða skipuleggjandi. Lögð verður áhersla á mikilvægi góðrar heilsu sem og áhrif svefns og næringar á frammistöðu rafíþróttamanna.
ÍSLE2mg05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
markvissri og skipulagðri þjálfun
hvernig heilsa, hreyfing og svefn hefur áhrif á frammistöðu
þjálfun í tölvuleikjaspilun
hvernig mismunandi leikir krefjast mismunandi leikni og færni til að gera liðið sem heild betra
tengslum andlegrar, félagslegrar og líkamlegrar heilsu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
stunda íþróttina markvisst
öðlast góðan tæknilegan grunn í greininni
beita skapandi lausnamiðaðri hugsun
stunda hreyfingu sem styrkir og gefur meira úthald til leikjaspilunar
nýta sér tækni- og miðlalæsi sér og liði sínu til framdráttar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera hluti af góðri liðsheild á jafnréttisgrundvelli
skipuleggja og halda viðburði
eiga jákvæð og skilvirk samskipti við liðsfélaga
halda viðburði innan og utan skóla og að leiðbeina öðrum í spilun leikja