Nemendur stunda markvisst og skipulega afreksþjálfun í íþrótt sinni 3-4x í viku undir handleiðslu þjálfara eða fagaðila. Nemendur þurfa að skila inn markmiðaáætlun til lengri tíma og fyrir önnina í upphafi. Nemendur þurfa að skila inn æfingadagbók eftir hverja viku. Í þessum áfanga er sérstök áhersla lögð á fjölbreyttar og öðruvísi æfingar en nemendur eru vanir.
AÍÞR2AÍ03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mikilvægi þess að þjálfun sé markviss og skipulögð til að ná árangri
líkamlegu formi og hvernig það er þjálfað markvisst og skipulega
markmiðaáætlun og hversu mikilvægt það er að setja sér mælanleg og raunhæf markmið til lengri og skemmri tíma
uppbyggingu þjálfunarprógrams
mikilvægi fjölbreytileika og kynnast öðruvísi hreyfiformum t.d. við endurheimt og viðhald líkamlegrar getu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp heilsteypta markmiðaáætlun
meta líkamlegt form sitt
meta kosti og galla sína sem íþróttamaður í þeirri íþróttagrein sem hann iðkar
útfæra og framkvæma sérhæfðar styrktaræfingar
meta fjölbreytt og öðruvísi hreyfiform við endurheimt og viðhald líkamlegrar getu
setja upp þjálfunarprógram þar sem unnið er með þau markmið sem nemandi hefur sett sér
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta þjálfun sína sem best til að ná sem bestum árangri í íþrótt sinni
útbúa sér markmiða- og þjálfunaráætlun sem tekur til mikilvægustu þátta þjálfunar sinnar út frá líkamlegu formi og getu viðkomandi
framkvæma æfingaprógram sjálfur, sem þjálfari, kennari eða hann sjálfur hefur útbúið
nýta sér og framkvæma fjölbreyttar æfingar og öðruvísi hreyfiform við endurheimt og viðhald líkamlegrar getu
geta tekið þátt í umræðum um viðfangsefnin á faglegan og uppbyggilegan hátt
Í áfanganum er viðhaft leiðsagnarmat með símati alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa að uppfylla skilyrði um mætingu og virkni í tímum. Áfanginn er metinn út frá verkefnaskilum, mætingu, virkni, færni, áhuga og sjálfstæði.