Nemandur læra að nota grunnatriði í forritun svo sem breytur, föll, klasa og hluti. Áhersla er lögð á að nemendur æfi sig í að byggja upp forrit á skipulegan hátt með ýmsum smá forritum. Nemendur læri kóðalæsi til þess að geta nýtt sé upplýsingar sem eru til á netinu í að byggja upp sín forrit. Nemendur nýta sér svo grunnatrið til að læra hlutbundna forritun við gerð á einföldum tölvuleikjum s.s. paint og Bricks breaking.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallaratriðum í hlutbundnu forritunarmáli
notkun á föllum í forritum
notkun á klösum og hlutum í forritun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
búa til einföld föll
búa til einfalda klasa og hluti
búa til einfalt smáforrit með hlutbundinni forritun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér föll í hlutbundinni forritun
nýta sér klasa og hluti í hlutbundinni forritun
forrita einföld smáforrit
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá