Aðalumfjöllunarefnið eru afbrot. Farið verður í hugtakið frávik og fjallað um ólíkar tegundir frávika. Spurningunni af hverju einstaklingar fremja afbrot verður velt upp. Hvaða brot eru algengust og hvaða áhrif refsingar hafa á afbrot. Mismunandi tegundir afbrota verða ræddar. Kenningar í afbrotafræði eru notaðar til að auka skilning á viðfangsefninu. Fjallað verður um afbrot í sögulegu samhengi, jafnt á Íslandi sem og erlendis. Viðmið og gildi ólíkra þjóðfélaga til afbrota tekin fyrir.
FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu hugtökum afbrotafræðinnar
afbrotaflokkum og tegundum refsinga
helstu kenningum í afbrotafræði
afleiðingum og kostnaði samfélaga vegna afbrota
völdum rannsóknarniðurstöðum innan afbrotafræðinnar
tengslum afbrotafræði við aðrar greinar félagsvísindanna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita vinnubrögðum félagsvísinda
miðla þekkingu sinni á fjölbreyttan og skipulegan hátt
vinna með heimildir og að nota APA kerfið
lesa og túlka fræðilegar rannsóknarniðurstöður
afla upplýsinga sem tengjast afbrotum og geta greint þær
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina eðli ólíkra afbrota
rökræða um málefni tengd afbrotafræði
leggja sitt af mörkum til að vinna gegn fordómafullri umræðu tengdri afbrotum á Íslandi
gera greinarmun á aðstæðum á Íslandi og erlendis
setja sig í spor frávika til að öðlast skilning á mismunandi aðstæðum fólks