Áfanginn kynnir hlutverk, tilgang og þýðingu blaðamennsku í samfélaginu og fyrir samfélagið.
Þróun blaðamennsku er rakin í sögulegu og menningarlegu samhengi, fréttir eru brotnar til mergjar og fjallað um helstu skilgreiningar sem snúa að fréttum.
Vikið verður að uppbyggingu frétta og samanburði á mismunandi tegundum frétta, fréttaskýringum og mannlífsefni.
Rakin verður þróun ljósvakamiðlunar og helstu tegundir ljósvakamiðla skoðaðar, frá tilkomu útvarps og sjónvarps. Áhersla verður lögð á samspil klassískra ljósvakamiðla, netsins og nýrra miðla.
Reynt verður eftir fremsta megni að greina framtíðarþróun innan bæði blaðamennsku og ljósvakamiðlunar.
Fjallað verður um ýmisleg siðferðileg álitamál sem tengjast blaðamennsku og farið í siðareglur blaðamanna
FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu og þróun fjölmiðlanna, hér heima og erlendis
hlutverki og ábyrgð blaðamanna í samfélaginu
viðtalstækni, skrifum, notkun ljósmynda og annarrar myndrænnar framsetningar í fjölmiðlum
helstu aðferðum við miðlun efnis í blaðamennsku og á ljósvakamiðlum
þýðingu blaðamennsku og ljósvakamiðlunar, sem og siðfræði fagsins á breiðum grundvelli
efni sem fellur undir blaðamennsku og ljósvakamiðlun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna og skila frá sér efni sem fellur undir blaðamennsku og ljósvakamiðlun
greina fréttatexta og efni í ljósvakamiðlum og meta heimildir
vinna með heimildir á faglegan og ábyrgan hátt
geta unnið með fræðilegan texta
taka og vinna frétta og mannlífsviðtöl, skrifa fréttir og fleira
tegundagreina margvíslegt efni í fjölmiðlum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hanna efni frá hugmynd til framleiðslu, bæði í blaðamennsku og ljósvakamiðlun
setja fram efni sem fellur undir nýmiðlun með aðstoð netins
geta skipulagt útlit og hönnun blaðs, bæklings eða annars prentaðs efnis
geta ritstýrt efni um afmarkað viðfangsefni, geta greint markhóp efnisins og tilgang
geta skrifað einfaldar fréttir, fréttaskýringar, viðtöl og álíka efni
geta áttað sig á muninum á skrumi og vönduðu efni varðandi innihald og framsetningu
tengja fræðin við þá umræðu sem er í þjóðfélaginu hverju sinni