Í þessum áfanga er farið í sögu kvikmynda og ljósmynda frá upphafi . Ýmis félagsleg og menningarleg áhrif miðlanna eru skoðuð. Farið verður lítilega í tæknilega þætti, bæði í sögulegu samhengi og í hagnýtri útfærslu. Nemendur taka ljósmyndir og vinna með þær. Nemendur taka stuttmynd og/ eða greina kvikmynd út frá fræðilegum viðmiðunnarramma.
FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu mynda , gildi og áhrifum myndmálsins
þróun mynda í grófum dráttum frá upphafi
sögu ljósmyndunar á Íslandi
sögu kvikmyndunar á Íslandi
verkum valdra erlendra ljósmyndara og sögu erlendrar kvikmyndunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
greina myndir frá ólíkum tímum
greina ljósmyndir í menningarmiðlum
greina kvikmyndir út frá ólíkum tímaskeiðum og kvikmyndastefnum
greina fagmál kvikmynda
geta unnið með heimildir á faglegan og ábyrgan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta tekið ljósmyndir á faglegan hátt
geta gagnrýnt ljósmyndir á faglegan hátt
nota fagmál kvikmynda við gerð stuttmynda
greina hvernig bæði ljósmyndir og kvikmyndir hafa áhrif á hugarfar og hegðun fólks
geta greint myndmál valinna kvikmynda í sögulegu ljósi