Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686654805.52

    Geðsálfræði
    SÁLF3GS05
    50
    sálfræði
    geðsálfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum er fjallað um geðsálfræði og flokkanir geðraskana. Lögð er áhersla á að nemendur átti sig á samspili sálfræðilegra, félagslegra og líffræðilegra þátta í geðröskun. Til að auka skilning á líffræðilegum og læknisfræðilegum þáttum er starfsemi heilans og þáttur taugaefna í líðan og geðröskun kynnt. Einnig er lögð áhersla á að nemendur geti tengt efnið við eigin geðheilsu og líðan. Í því samhengi er nánar fjallað um streitu í daglegu lífi og þau áhrif sem hún getur haft á geðheilsu einstaklings.
    FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einkennum mismunandi geðraskana
    • kenningum um mögulegar orsakir geðraskana
    • algengustu meðferðarúrræðum
    • helstu hugtökum og kenningum í geðsálfræði
    • framlagi geðsálfræðinnar innan sálfræðinnar og til samfélagsins í heild
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hugtökum og kenningum í geðsálfræði í ræðu og riti
    • afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
    • lesa og nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendum tungumálum
    • miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
    • nota APA kerfið við skrif ritgerða og verkefna
    • geta með einföldum hætti yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
    • geta beitt gagnrýnninni hugsun og tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast áfanganum
    • geta hagnýtt og yfirfært efni áfangans á eigin geðheilsu og daglegt líf
    • tjá sig skipulega á gagnrýninn hátt um einstaka efnisþætti