Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686655425.86

    Inngangur að stjórnmálafræði
    STJÓ3IS05
    2
    stjórnmálafræði
    inngangur að stjórnmálafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfanga eru kennd grunnatriði stjórnmálafræðinnar, lýðræðis og hugmyndafræði stjórnmála. Unnið er með íslenska stjórnkerfið og fjallað um alþjóðleg samsamskipti. Farið verður í uppbyggingu íslenska stjórnkerfisins og lykilhugtök sem tengjast því. Fjallað verður um samspil fjölmiðla, stjórnmála og efnahagslífs. Einnig verður fjallað um kosningakerfi og kosningahegðun. Gerður verður samanburður á stjórnkerfum nágrannaþjóða okkar, sérstaklega Norðurlanda, Bretlands og Bandaríkjanna. Gerð verður grein fyrir þróun og starfsemi helstu alþjóðastofnana og samskipta Íslands við þær.
    FÉLV2AF05 eða ÍSLE2MG05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppbyggingu og þróun íslenska stjórnkerfisins
    • ólíkum stjórnkerfum
    • helstu alþjóðlegu stofnunum sem Ísland er aðili að, sem og öðrum
    • stjórnkerfum Íslands, Norðurlanda, Bretlands og Bandaríkjanna
    • uppruna og þróun lýðræðis
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • bera saman ólík stjórnkerfi
    • bera saman mismunandi alþjóðastofnanir
    • vinna með heimildir í APA kerfinu
    • miðla fræðilegum texta á skipulegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta greint og unnið með upplýsingar á gagnrýninn hátt
    • geta fært rök fyrir máli sínu með skipulögðum hætti
    • gera sér grein fyrir stöðu sinni og möguleikum til áhrifa í hinu pólitíska kerfi
    • þroska með sér lýðræðislega vitund og öðlast öryggi til að taka þátt í hinu stjórnmálalega