Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686656603.26

    Undirbúningsáfangi
    ÍSLE1UN05
    158
    íslenska
    undirbúningsáfangi í íslensku
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum eru nemendur þjálfaðir í ólíkum gerðum ritsmíða og ýmsu sem tengist málnotkun og tjáningu. Nemendur rifja upp helstu hugtök bókmenntafræði og bragfræði sem og helstu stafsetningarreglur, málfræðihugtök og grunnatriði setningafræði. Í áfanganum lesa nemendur smásögur, skáldsögu, Íslendingaþætti og ljóð sem og annað efni sem stuðlar að aukinni lestrarfærni og getu til túlkunar. Nemendur styrkja eigin málfærni með því að flytja efni í ræðu og riti.
    Fyrir nemendur sem fá C á grunnskólaprófi eða hafa klárað ÍSLE1UA05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli
    • mismunandi tegundum bókmennta og grunnhugtökum í bókmenntafræði
    • helstu hugtökum er tengjast ritun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rita vel uppbyggðan texta
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
    • nýta málfræðihugtök og ritreglur til að efla eigin málfærni
    • lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra á fræðilegan hátt
    • flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna í tengslum við námsefnið og sýna nokkur tilbrigði í málnotkun
    • beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
    • styrkja eigin málfærni með því að nýta sér málfræðiupplýsingar og ritreglur