Bókmenntasaga frá eddukvæðum til siðaskipta 800-1550
ÍSLE2ES05
77
íslenska
Eddukvæði til siðaskipta
Samþykkt af skóla
2
5
Nemendur læra um kveðskaparöld og lesa forn kvæði og texta. Ein Íslendingasaga er lesin. Farið er í upphaf ritunar á Íslandi og bókmenntasagan rakin allt að siðaskiptum.
Nemendur tjá sig í ritun og ræðu um efni áfangans.
ÍSLE2MG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mismunandi tegundum bókmenntatexta
stefnum í íslenskum bókmenntum að fornu
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
ritun og heimildavinnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skrifa og ganga frá margskonar texta
lesa fornt mál sér til gagns og gamans
skilja lykilhugtök og túlka texta á margvíslegan hátt
flytja af öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita málinu á árangursríkan og viðeigandi hátt í ræðu og riti
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta