Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686660853.2

    Málsaga, goðafræði, bókmenntir og ritun
    ÍSLE2MG05
    78
    íslenska
    bókmenntir og ritun, goðafræði, málsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Nemendur kynna sér heim og hugmyndafræði nýrra sagna jafnt sem fornbókmennta. Fjallað er um helstu þætti málsögu og einnig er ítarleg umfjöllun um goðafræði. Nemendur eru þjálfaðir í gerð heimildaritgerða og læra ýmislegt um frágang ritaðs máls auk þess sem farið er áfram yfir helstubókmenntahugtök og stafsetningarreglur. Ætlast er til að nemendur geti flutt mál sitt á skýran og skilmerkilegan hátt.
    Fyrir nemendur sem hafa fengið A eða B á grunnskólaprófi eða hafa klárað ÍSLE1UN05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu þáttum íslenskrar málsögu
    • helstu hugtökum í ritgerðasmíð og gerð heimildaritgerða
    • mismunandi tegundum bókmennta og norrænni goðafræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rita ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
    • draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á faglegan og heiðarlegan hátt
    • lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
    • skilja og nota algeng stílbrögð í tal- og ritmáli
    • flytja af nokkru öryggi ræður, endursagnir, lýsingar og kynningar á tilteknum málefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
    • styrkja eigin færni í að nota heimildir á réttan hátt
    • beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
    • túlka bókmenntatexta frá ýmsum tímum
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu