Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686661923.98

    Bókmenntasaga frá nýrómantík til aldamóta, 1903-2000
    ÍSLE3NA05
    121
    íslenska
    Nýrómantík til aldamóta
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga 20. aldar og fram á okkar tíma. Ýmsir textar lesnir. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun.
    ÍSLE2ES05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ritgerðasmíð
    • orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
    • helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum síðari alda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa ritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
    • ganga frá texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
    • skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
    • nýta sköpunargáfu og sýna sjálfstæði við úrvinnslu verkefna
    • flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
    • lesa sér til gagns og gamans bókmenntatexta síðari tíma
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
    • beita málinu á árangursríkan og viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður
    • tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
    • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta og geta miðlað því á skýran hátt til samnemenda sinna
    • átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
    • sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
    • sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum