Áfanginn er fyrir alla nemendur sem eru ekki á viðskipta- og náttúrufræðibraut. Í áfanganum er unnið áfram með hugtök stærðfræðinnar og vinnubrögð þjálfuð. Unnið er með algebru, jöfnur af fyrsta og öðru stigi, veldareglur, hornaföll í rétthyrndum þríhyrningi og mengjafræði. Þjálfun í táknmáli stærðfræðinnar og áhersla lögð á framsetningu og rökstuðning.
Fyrir þá sem fengu A eða B á grunnskólaprófi eða hafa lokið STÆR1HS05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
undirstöðuhugtökum hnitarúmfræði í sléttum fleti og þekki jöfnu beinnar línu
undirstöðuatriðum tölfræðinnar og líkindafræðinnar
margliðum og geti leyst annars stigs jöfnur
ýmsum rúmfræðireglum um þríhyrninga og hringi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa úr og túlka tölfræðiupplýsingar sem settar eru fram með töflum og myndum
setja tölulegar upplýsingar fram myndrænt
leysa annars stigs jöfnur
nýta sér rúmfræðireglur
beita fjölbreyttum vinnubrögðum og nýta sér hjálpartæki og forrit
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
túlka tölfræðiupplýsingar
að beita fjölbreyttum vinnubrögðum við lausn stærðfræðilegra verkefna og þrauta, geta rætt þau við aðra og unnið með þeim að lausn þeirra og geta gert munnlega grein fyrir niðurstöðum sínum og aðferðum
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra á viðeigandi hátt
átta sig á og gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og í texta