Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Deildajöfnur og heildi
deildarjöfnur, heildi
Unnið er með stofnföll falla, óákveðið og ákveðið heildi og heildunaraðferðir. Deildajöfnur af fyrsta stigi eru skoðaðar og runur og raðir.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- stofnföllum falla og heildareikningi
- helstu reglum um ákveðið og óákveðið heildi
- ýmsum aðferðum til að finna heildi
- deildajöfnum af fyrsta stigi
- endanlegum og óendanlegum runum og röðum
- tengslum deildunar og heildunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- finna stofnföll
- heilda með aðferðum eins og innsetningu, hlutheildun og liðun í stofnbrot
- beita reglum um ákveðið heildi til að finna flatarmál og rúmmál
- nota fyrsta stigs deildajöfnur til að leysa hagnýt dæmi
- gera greinarmun á jafnmuna- og jafnhlutfallarunum og röðum
- beita hjálpartækjum og forritum við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nota heildi til að finna flatarmál og rúmmál
- geta skráð lausnir sínar skipulega og skilmerkilega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
- beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum og geta útskýrt aðferðir sínar
- gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
- beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
- fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
- hagnýtt sér stærðfræðilega þekkingu sína til ákvarðanatöku í sérhæfðum verkefnum
- takast á við stærðfræðileg verkefni þar sem nota þarf ólíkar aðferðir samtímis eða hverja á eftir annarri