Í áfanganum er unnið með vísisföll og logra. Markgildishugtakið er kynnt og notað til að kanna
samfelldni falla. Afleiða falls er skilgreind og deildun notuð við könnun á ferlum falla.
STÆR2FJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
eiginleikum vísis- og lografalla
hugtökum og formúlum vaxtareiknings
markgildishugtakinu
samfelldnihugtakinu
afleiðum falla og hvaða upplýsingar afleiða falls gefur um feril þess
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leysa vísis- og lograjöfnur
vinna með ýmsar jöfnur úr vaxtareikningi
nota skilgreiningu á afleiðu til að finna afleiðu falls
beita afleiðureglum til að deilda ýmsar gerðir falla
nota afleiður til að kanna föll
beita hjálpartækjum og forritum við lausn stærðfræðilegra viðfangsefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leysa ýmis hagnýt verkefni sem tengjast viðskiptum
setja fram stærðfræðileg líkön til að lýsa raunverulegum aðstæðum eða fyrirbærum
nota afleiður sem hjálpartæki við að teikna og túlka gröf falla
nota afleiður til að leysa ýmis hagnýt verkefni, s.s. að finna hámark og lágmark fyrir gefið fall
geta skráð lausnir sínar skipulega og skilmerkilega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
rekja sannanir í námsefninu
geta skráð lausnir sínar skipulega og skilmerkilega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt