Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
rúmfræði, þrívídd
Meginefni áfangans er þrívíð rúmfræði, með og án hnitakerfis og keilusnið
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- helstu hugtökum og viðfangsefnum í tvívíðu og þrívíðu hnitakerfi
- margflötungum
- hornum og lengdum í þrívíðu rúmi
- vigurreikningi í þrívíðu rúmi
- keilusniði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- vinna með helstu hugtök og viðfangsefni í tvívíðu og þrívíðu hnitakerfi
- finna allar stærðir horna og lengda í reglulegum margflötungum
- reikna stærðir horna og lengdir strika í þrívíðu rúmi
- reikna með vigurreikningi í þrívíðu rúmi
- vinna með keilusnið og jöfnur hrings, sporbaugs og breiðboga
- beita hjálpartækjum og forritum við lausn verkefna
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- geta skráð lausnir sínar skipulega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
- beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geti útskýrt aðferðir sínar
- geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í rúmfræðinni
- gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
- beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
- fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
- rekja sannanir í námsefninu
- átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi