Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686670390.23

    Framhaldsáfangi
    ÞÝSK1FR05
    34
    þýska
    framhaldsáfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Bætt er við orðaforða- og málfræðiþekkingu og áfram unnið með tal, hlustun, ritun og lestur í samræmi við færnimarkmið áfangans. Nemendur æfast munnlega og skriflega í að ákvarða stefnumót, skipuleggja frítíma, gefa upp tímasetningar, tjá skoðun sína, tala um kaup og kjör í verslunum, spyrja og vísa til vegar, gefa upp staðsetningar, gefa og þiggja ráð, boð og bönn og tala um liðna atburði. Nemendur öðlast aukna innsýn í menningu og siði þýskumælandi svæða.
    ÞÝSK1GR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða í samræmi við öll helstu hæfni- og leikniviðmið áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • grunnþáttum í menningu þýskumælandi landa
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
    • fylgja fyrirmælum á þýsku og skilja kveðjur og kurteisisávörp
    • skilja einfalda texta af ýmsum toga
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • beita helstu reglum áfangans um málnotkun í ræðu og riti
    • beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
    • nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • eiga einföld samskipti á þýsku við ákveðnar aðstæður
    • tala um sjálfan sig og aðra og ýmsar aðstæður daglegs lífs í ræðu og riti á einfaldan hátt
    • vinna úr ýmsum textum á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
    • meta eigið vinnuframlag og kunnáttu