Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686748742.94

    Lestur og verkefnavinna
    ÞÝSK2LV05
    30
    þýska
    lestur og verkefnavinna
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Markviss þjálfun í lestri, ritun, hlustun, munnlegri tjáningu og orðaforðauppbyggingu. Upprifjun á helstu atriðum þýskrar málfræði í takt við þarfir nemendahópsins. Nemendur fræðast um menningu og staðhætti þýskumælandi landa. Nemendur kynnast þýskri kvikmyndagerð.
    ÞÝSK2BM05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
    • flóknari þáttum málkerfisins
    • mismunandi textagerðum
    • menningu og samfélagi þýskumælandi landa í gegnum kvikmyndir og ritaðan texta
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja skýrt talað mál og megininntak í myndmiðlum
    • skrifa vandað mál sem hæfir aðstæðum hverju sinni
    • tjá eigin skoðanir og fyrirætlanir
    • nota upplýsingatækni og hjálpargögn
    • nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
    • lesa ólíkar textagerðir m.a. í smásögum og ljóðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla munnlega og skriflega um efni sem hann hefur kynnt sér
    • tjá sig á þýsku við ýmsar aðstæður í almennum samskiptum
    • meta innihald kvikmyndar og vinna verkefni um efni hennar
    • tileinka sér mismunandi texta
    • skrifa mismunandi tegundir texta
    • meta eigið vinnuframlag og annarra