Í áfanganum er lögð áhersla á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn og hlustun og tal þjálfað svo að þeir geti tjáð sig skriflega og munnlega um undirbúin efni. Þeir eiga einnig að vera færir um að skilja venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Nemendur eru þjálfaðir í framburði og læra að beita undirstöðuatriðum málfræðinnar. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn.
Fyrir nemendur sem fengu A eða B á grunnskólaprófi eða hafa lokið DANS1FR05.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
grundvallarþáttum málkerfisins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt og áheyrilega
lesa ýmiss konar texta á eigin áhugasviði eða texta um kunnugleg efni
segja frá með því að beita orðaforða, málvenjum, framburði, áherslum og hljómfalli á sem réttastan hátt
skrifa samfelldan texta um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á og nota viðeigandi málfar
fara eftir grundvallarreglum sem gilda um ritað mál
taka þátt í almennum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
nýta sér upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
fylgjast með frásögnum um almenn efni
ná aðalatriðum úr fjölmiðlum og nýta sér þau, þegar fjallað er um kunnugleg efni
tileinka sér aðalatriðin í styttri textum og nýta á mismunandi hátt
ráða við mismunandi aðstæður í almennum samskiptum um kunnugleg efni
útskýra og rökstyðja skoðanir sínar
miðla eigin þekkingu og skoðunum á efni, sem hann hefur kynnt sér
leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
þróa með sér aga, metnað, ábyrgð og jákvæðni í vinnubrögðum