Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist dýpri og sérhæfðari orðaforða en áður og geti nýtt sér hann í öllum færniþáttum. Þeir eiga að geta tjáð sig lipurt bæði munnlega og skriflega. Nemendur fá þjálfun í að vinna sjálfstætt að verkefnum og geta lagt mat á eigin vinnu. Nemendum er áfram veitt innsýn í danska menningu og siði.
DANS2LO05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
orðaforða til undirbúnings á háskólastigi
helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður
lesa fjölbreyttar gerðir texta
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
rita margs konar texta, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
beita meginreglum danskrar málfræði og setningarfræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
tileinka sér innihald ritaðs texta og nýta það á mismunandi hátt
átta sig á dýpri merkingu texta
tjá sig hiklaust og taka þátt í samræðum við ólíka viðmælendur
skiptast á skoðunum og setja fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi, koma þeim kunnáttusamlega til annarra og bregðast við viðmælendum
tjá sig skýrt og lipurlega fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem nemandinn hefur kynnt sér
skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni
lesa texta um ákveðin viðhorf og skoðanir og geta brugðist við þeim