Megináherslan er á ritunar- og samtalsæfingar úr efni áfangans, lestrarþjálfun, aukinn orðaforða og málfræðikunnáttu. Nemendur þjálfast í að segja frá í nútíð, núliðinni tíð, þátíð og nálægri framtíð, læra að tjá sig um daglegar venjur, nám og vinnu og læra að eiga samskipti í verslunum og á veitingastöðum. Áfram er unnið með efni sem veitir innsýn í menningu og siði spænskumælandi landa
SPÆN1GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
grunnatriðum málkerfisins
útbreiðslu spænskunnar ásamt ólíkum venjum og menningu spænskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
fylgja einföldum fyrirmælum á spænsku í kennslustundum
lesa einfalda texta af ýmsum toga og vinna úr þeim á mismunandi hátt
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og hefur áhuga á og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans, svo sem mannlýsingar og einfaldar frásagnir
beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina fremur einfaldar upplýsingar í mæltu máli
eiga einföld samskipti á spænsku við ákveðnar aðstæður
vinna úr einföldum textum af ýmsum toga á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
segja frá sjálfum sér og öðrum og geta lýst venjum og daglegum athöfnum í ræðu og riti á einfaldan hátt