Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins, temji sér góð og viðeigandi vinnubrögð og fái innsýn í menningu spænskumælandi landa. Nemendur læra að kynna sig og aðra, tala um fjölskyldu sína, lönd og landshætti, fatnað og fatakaup, daglegar venjur og áhugamál. Nemendur eru þjálfaðir í færniþáttunum fjórum, tali, hlustun, ritun og lestri.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
helstu reglum um framburð, áherslur og hljómfall
grunnatriðum málkerfisins
útbreiðslu spænskunnar ásamt ólíkum venjum og menningu spænskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
fylgja einföldum fyrirmælum á spænsku í kennslustundum
skilja mjög einfalda texta sem fjalla um kunnugleg viðfangsefni og innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum
taka þátt í afar einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og hefur áhuga á og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, nánasta umhverfi og áhugamálum í nútíð
skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans
beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
eiga einföld samskipti á spænsku við ákveðnar aðstæður
segja frá persónulegum högum í ræðu og riti á einfaldan hátt
vinna úr einföldum texta á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum