Í þessum áfanga er að mestu lokið við innlögn grunnþátta málkerfisins, auk þess sem nemendur þjálfast í færniþáttunum fjórum, lestri, ritun, hlustun og tali. Nemendur lesa flóknari texta en áður svo sem skáldsögu, ljóð og dægurlagatexta og spreyta sig í auknum mæli á vinnu með rauntexta. Nemendur fræðast um sögu og menningu nokkurra spænskumælandi landa.
SPÆN1FF05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
fjölþættum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
grunnatriðum málkerfisins
mannlífi, menningu og siðum spænskumælandi landa
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja frásagnir og umræður um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
fylgja fyrirmælum á spænsku í kennslustundum
lesa og skilja margskonar gerðir texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
taka þátt í samræðum um afmörkuð undirbúin efni og um efni sem hann þekkir
miðla upplýsingum um málefni sem hann hefur kynnt sér
skrifa fremur stutta samfellda texta svo sem samantektir, endursagnir og frásagnir af eigin reynslu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meðtaka daglegt mál, s.s. samræður og fjölmiðlaefni ef hann þekkir til efnisins og talað er skýrt
tjá skoðun sína á lesnum texta
ræða við aðra af nokkru öryggi um efni sem hann þekkir vel
miðla upplýsingum um undirbúið efni í ræðu og riti
leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra og beita til þess viðeigandi mál-og samskiptavenjum
hagnýta á mismunandi hátt efni ritaðra texta af ýmsum toga