Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1686820483.07

    Frásagnir og ferðalög
    FRAN1FF05
    20
    franska
    frásagnir og ferðalög
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur bæti markvisst við grunnþekkingu sína í tungumálinu og geti beitt því við æ fjölbreyttari aðstæður. Frásagnir í nútíð og þátíðunum tveimur eru æfðar munnlega og skriflega. Nemendur öðlast m.a. færni í að tala um nám og atvinnu, gefa ráð og leiðbeiningar, lýsa áfangastöðum og ferðalögum. Nemendur auka lesskilning sinn m.a. með því að lesa einfalda skáldsögu eða smásögur. Nemendur fá aukna innsýn í menningarheim frönskumælandi svæða og vinna menningartengt heimildaverkefni.
    FRAN1FR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
    • öllum helstu reglum um framburð og hljómfall
    • fleiri grunnatriðum málkerfisins
    • menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða á markvissari hátt en áður
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er fremur hægt og skýrt
    • fylgja fyrirmælum á frönsku í kennslustundum
    • skilja ýmiss konar einfalda texta sem fjalla um viðfangsefni áfangans og festa í sessi og auka orðaforða
    • fylgja söguþræði í einföldum eða einfölduðum bókmenntatexta
    • taka þátt í frekar einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og hefur áhuga á og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • skrifa samfellda texta um ýmis kunnugleg efni
    • halda stutta kynningu á undirbúnu efni
    • beita helstu reglum um málnotkun
    • beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn á sjálfstæðan hátt
    • nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • ná aðalatriðum í einföldum frásögnum úr fjöl- og myndmiðlum ef efnið er kunnuglegt
    • geta tekið þátt í samræðum í ákveðnum aðstæðum á sjálfstæðari hátt en áður
    • segja frá eigin þekkingu, reynslu, áhugamálum, áformum, skoðunum og líðan í ræðu og riti
    • afla sér upplýsinga upp á eigin spýtur úr textum um almennt efni
    • greina aðalatriðin í stuttum tímarits- eða blaðagreinum og draga ályktanir
    • lesa skáldskap af hæfilegu þyngdarstigi og tjá sig um efni hans í ræðu og riti