Í þessum áfanga eru viðfangsefni grunnáfangans rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Bætt er við orðaforða- og málfræðiþekkingu og áfram unnið með tal, hlustun, ritun og lestur. Nemendur verði m.a. færir um að tala um veður, áform, lönd og borgir, húsnæði, daglegar venjur og tímasetningar. Einnig læra nemendur að tjá sig í þátíð og að bjarga sér á veitingastöðum og í verslunum. Nemendur öðlast aukna innsýn í menningu og siði frönskumælandi svæða og aukið vald á framburði.
FRAN1GR05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
helstu reglum um framburð og hljómfall
fleiri grunnatriðum málkerfisins
menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða í auknum mæli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
fylgja einföldum fyrirmælum í kennslustundum
skilja einfalda texta af ýmsum toga sem fjalla um viðfangsefni áfangans og festa í sessi og auka orðaforða
taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og geta beitt kurteisis- og málvenjum við hæfi
skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans
beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
beita viðeigandi námstækni í tungumálanáminu og nýta sér hjálpargögn
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina fremur einfaldar upplýsingar í mæltu máli
eiga einföld samskipti á frönsku við ákveðnar aðstæður
tala um sjálfan sig og aðra og ýmsar aðstæður daglegs lífs í ræðu og riti á einfaldan hátt
skilja einfalda texta af ýmsum toga og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum
nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi