Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði franskrar tungu og fái innsýn í menningu frönskumælandi landa. Nemendur læra m.a. að kynna sig og aðra, tala um áhugamál og frítíma, líðan, fjölskyldu sína og álit. Nemendur eru þjálfaðir í færniþáttunum fjórum; tali, hlustun, ritun og lestri. Mikil áhersla er lögð á að nemendur nái tökum á helstu framburðarreglum í þessum fyrsta áfanga.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
almennum orðaforða í samræmi við hæfni- og leikniviðmið áfangans
helstu reglum um framburð og hljómfall
grunnatriðum málkerfisins
útbreiðslu frönskunnar ásamt nokkrum þáttum í menningu og þjóðfélagi frönskumælandi svæða
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er hægt og skýrt
fylgja einföldum fyrirmælum í kennslustundum á frönsku
skilja mjög einfalda texta sem fjalla um kunnugleg viðfangsefni og innihalda algengan orðaforða sem tengist nemandanum, umhverfi hans og áhugamálum
taka þátt í afar einföldum samræðum um efni sem hann þekkir og tengist honum sjálfum og beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, nánasta umhverfi og áhugamálum
skrifa einfalda texta í takt við viðfangsefni áfangans
beita helstu reglum um málnotkun á sem réttastan hátt í ræðu og riti
beita viðeigandi námstækni í tungumálanámi og nýta sér hjálpargögn
nota sjálfstæð og viðeigandi vinnubrögð í tungumálanámi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
eiga einföld samskipti á frönsku við ákveðnar aðstæður
segja frá persónulegum högum í ræðu og riti á einfaldan hátt
vinna úr einföldum texta á mismunandi hátt eftir efni og eðli textans og tilganginum með lestrinum