Fjallað er um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grundvallarhugtökin eignir og skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók, hafi skilning á uppgjöri og geti sett fram einfaldan efnahags- og rekstrareikning. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnhugtökum bókfærslu:
debet og kredit
eignum og skuldum
gjöldum og tekjum
virðisaukaskatti og tilgangi hans
helstu lögum um bókhald
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa einfaldar dagbókarfærslur
stilla upp prófjöfnuði
færa niðurstöður dagbókar í aðalbók
setja upp efnahags- og rekstrarreikning
reikna út hagnað og tap
gera upp viðskipti fyrir ákveðið tímabil
gera upp virðisaukaskatt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: