Farið er yfir bókanir sem tengjast innflutningi, tollafgreiðslu og greiðslu virðisaukaskatts í tolli. Farið er í mismunandi reglur um fyrningar eigna, bókun skuldabréfa, hlutabréfa og annarra verðbréfa. Einnig er farið í stofnun og slit fyrirtækja, breytingar á réttarformi og fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækja.
BÓKF1IB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim lögum sem í gildi eru um toll og virðisaukaskatt
lögum um tekju- og eignaskatt einstaklinga
helstu innflutningskjölum vegna tollafgreiðslu og virðisaukaskatts
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa færslur vegna innflutnings
færa færslur vegna verðbréfaviðskipta
færa færslur vegna stofnunar og slita fyrirtækja
færa færslur vegna launagreiðslna og geta reiknað afdregna staðgreiðslu, tryggingagjald og gjöld í lífeyrissjóð
færa færslur sem eru tengdar hlutabréfaeign, arði, gengisbreytingum og jöfnunarhlutabréfum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta stofnað lítið fyrirtæki og fært bókhald fyrir það