Kynnt eru grundvallarhugtök og meginviðfangsefni markaðasfræðinnar. Áhersla er lögð á að auka skilning nemenda á gildi markaðsstarfs fyrir neytendur, fyrirtæki og samfélagið í heild. Leitast er við að nemendur tileinki sér markaðslega hugsun. Fjallað er um söluráðana og samval þeirra við markaðssetningu. Nemendum er kynnt helstu atriði er varða umhverfi fyrirtækja, markaðshlutun og vinnuferli skoðuð við markaðssetningu
Einnig er afstaða fyrirtækja til markaðarins.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tilgangi og hugmyndafræði markaðsfræðinnar
þýðingu markaðsstarfs fyrir fyrirtæki og samfélag
hugtökum og hugmyndum varðandi vöruþróun og vörur
samvali söluráða
kaupvenjum á neytenda – og fyrirtækjamarkaði
mikilvægi markaðshlutunar í öllu markaðsstarfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa í markaðinn
beita samvali söluráða á árangursríkan hátt
lesa í kaupvenjur einstaklinga og fyrirtækja
framkvæma markaðshlutun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta nýtt sér þekkinguna til að meta markaðsumræðuna
geta lesið í áreiti frá markaðnum á gagnrýninn hátt