Farið er í grunnhugtök og kenningar í stjórnun. Leitast er við að veita nemendum innsýn í störf stjórnenda, stjórnunarstíla og kynna þeim ýmis verkefni sem þeir inna af hendi.
Nemendum er kynnt gildi stjórnunar og skipulagningar fyrir einstaklinginn, fyrirtæki og samfélagið.
Viðfangsefni áfangans miða m.a. að því að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í félags- og atvinnulífi.
Einnig verður farið í ýmsar undirgreinar stjórnunar, samanber mannauðsstjórnun, breytingastjórnun o.fl.
FJÁR2FL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun stjórnunar sem fræðigrein
mikilvægi stjórnunar fyrir einstaklinginn, fyrirtæki og samfélagið
helstu stjórnunarkenningum og stílum
helstu hlutverkum stjórnandans
þekki helstu skipurit um dreifingu valds og ábyrgðar
helstu hvatakenningum, grunnatriðum mannauðsstjórnunar
markmiðasetningu og mikilvægi hennar
undirgreinum stjórnunar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera starfsferilsskrá
beita árangursríkri fundarstjórnun
lesa úr helstu tegundum skipurita og lýsa mikilvægi skýrra boðleiða í fyrirtækjum
lýsa kostum og göllum hópavinnu
undirbúa starfsmannaviðtal
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
stjórna fundi
geta sett sér markmið og fylgt þeim eftir
geta greint hvað felst í hlutverki stjórnandans
lesa úr skipuritum og átta sig á samskiptaleiðum innan fyrirtækisins